Öll réttindi kvenna í stjórnarskrá eru í hættu

Sall Grover háir baráttu við kerfið og karlmann sem segist vera kona. Sall stofnaði app fyrir konur. Þar geta þær sótt eftir herbergis- og ferðafélaga svo eitthvað sé nefnt. Hún henti öllum karlmönnum út enda appið ekki ætlað báðum kynjum. Þegar hún fluttist til USA leitaði hún að herbergisfélag og varð fyrir reynslu sem ýtti henni út í að búa til appið þegar hún flutti aftur til Ástralíu.

Einn karlinn sættir sig ekki við neitun og höfðaði mál gegn henni. Nú liggja dómstólar undir feldi, verður réttindum kvenna rústað. Verða öll lög sem talar um konur að engu. Missa allir konur réttindi sín vegna karlmanns sem segist vera kona og vill vera þar sem konur eru.

Sall heyir allt aðra kvennabaráttu en Rauðsokkurnar gerðu. Að kvennabarátta árið 2024 skuli snúast um réttindi kvenna t.d. til einkarýma er ótrúlegt. Verjast ágangi karlmanna. Sorglegast er að konur styðja valdtöku karla sem skilgreina sig sem konur, og segja það að umburðarlyndi. Nei þetta er mannvonska að láta einn hóp blæða fyrir réttindi annarra. Ekkert jafnræði og engin mannréttindi í því.

Öll stjórnarskrávarin réttindi kvenna er í húfi!

Hér má hlusta á viðtal við Sall Crover.


Hægt að útrýma einhverfu ef menn viðurkenna rétt kyn fólksins

Starfsfólk í félagsþjónustunni í Danmörku á að mennta svo þau geti sent einhverfa af stað í ,,kynjaferðalag“ – Danska félags- og húsnæðisstofnunin stendur á bak við það.

Danska félags- og húsnæðisstofnunin stendur að baki verkefni sem á að þjálfa starfsmenn félagsþjónustunnar til að senda einhverfa í ,,kynjaferðalag," Rökin eru, það kemur fram í ,,rannsókn“ sem mælir með því. Þegar sú rannsókn er skoðuð sést að hún trans aktivísk og styður hinsegin kenningar og hugmyndafræði. Þetta kemur fram í bloggi Lotte Ingerslev um málið.

Verkefnið mun leiða til framleiðslu fræðsluefnis – og líklega einnig ,,uppfærslu" námskeiða – sem upphaflega eru ætluð starfsfólki sem sinnir einhverfum.

Sagt er að verkefnið sé til að auka ,,gagnrýna nálgun á (kynja)viðmiðum" meðal fagfólks. Og það starfsfólk sem efist verða að velta fyrir sér ,,eigin kynjahlutdrægni.“

Þær svokölluðu ,,rannsóknir" sem verkefnið byggir á eru ekki gæðametnar á nokkurn hátt.

Meðal annars er gefið í skyn að einhverfu einkenni séu kannski alls ekki vegna einhverfu, heldur að þau séu vegna þess að fólk sem er með ,,mismunandi kynvitund" sé ,,rangkynjað" og stimplað.

Allt við ,,kynjaferðina" er lýst sem jákvæðu. Það eru engir ókostir og engin áhætta en maður þarf að taka fyrsta ,,prófið“, fyrsta skrefið í verkefninu er að taka ,,þekkingarpróf.“ Það gengur út á að þú svarir alls kyns spurningum um eigið kyn, tilfinningu þína gagnvart kyni o.s.frv.

Ekki er minnst á orð um samkynhneigð eða félagslegt smit. Ég hef farið ofan í saumana á þessu- skoðað smáatriðin segir Lotte. Hér er ritið sem Lotte hefur farið í gegnum lið fyrir lið.

Í einu fylgiskjalinu sem fylgir með færslu Lotte segir: Ef þú fylgir þessari ,,rökfræði" er augljóst að starfsfólk félagsþjónustunnar geta dregið úr eða jafnvel útrýmt einhverfum eiginleikum fólks með því að vera 100% fylgjandi þörf einhverfra fyrir að tengjast kynjafjölbreytileikanum. Það tryggir þeim meðferð sem færir líkamann í takt við innri reynslu þeirra af kynvitund, þannig að þeir verði ekki lengur fyrir fordómum vegna þess að samfélagið lítur á þá sem það kyn sem þeir ,,raunverulega" eru.

Lotte segir;  Eins og sjá má telja höfundar ritsins mikilvægt að starfsmenn félagþjónustunnar ,,afli sér þekkingar" um t.d. ,,kynskipti" og ,,notkun fornafna". Þannig þurfa þeir að staðfesta við einhverft fólk að það sé á leið í ,,kynjaferðina".

Lotte Ingerslev er sálgreinir sem hefur skrifað mikið um trans málaflokkinn af mikilli fagmennsku. Öll hennar umfjöllun fjallar um börn, því hún eins og bloggara er nákvæmlega sama hvað fullorðið fólk gerir. Hún kaupir og nær í rannsóknir, hefur augun opin fyrir því sem gerist í veldi Friðriks X og kemur því efni til skila. Það sem er þýtt hér að ofan er lítið brot af færslunni hennar sem sjá má hér.

Lotte býður fólki að kaupa kaffibolla til að styrkja vinnuna sem hún leggur í þetta. Þeir sem hafa áhuga að kaupa kaffi geta ýtt hér.


Litningargalli og viðtal við Imane Khelif

Í kjölfar umræðu um hnefaleikamanninn sem sló Ítalann út á 46 sek. hafa ýmsar vangaveltur komið upp. Margir telja hann karlmenn og aðrir ekki. OL-nefndin gaf út yfirlýsingu, hvorki um trans-konu að ræða né heldur DSD, svona er viðkomandi bara. 

"ATHUGIÐ. Þetta er ekki trans kona, heldur 99 prósent líklega karlmaður með sama litningafrávik og hlauparinn Caster Semenya. ,,DSD - truflanir á kynþroska." Hópurinn heitir 46, XY, 5 ARD. Er með XY litninga (þ.e. karlkyns) í hverri frumu og testósterónmagn karla. Hins vegar eru ytri kynfæri þeirra við fæðingu ekki skýr, geta líkst konu og þess vegna eru þeir skráðir og alast upp sem stelpur. Hins vegar eru þeir með virk eistu í kviðarholinu og fara því í gegnum kynþroska karla sem er ávinningurinn.

Þessi litningaskekkja sést oftast á meginlandi Afríku." segir Astrid Randi Thinnesen.

Danskur læknir, Jens Fedder, segist ekki geta sagt hvort Imane sé karl eða kona, til þess þurfi hann hormónapróf og líkamsskoðun til að ganga úr skugga um hvort hann finni leg og annað sem einkenni kvenfólk. Kyneinkenni hjá þessu fólki geta legið í dvala fram að kynþroskanum og þá kemur í ljóst hvort kynið er hafi maður ekki gert nákvæma greiningu á litningum.

Lasse Rimmer segir um DSD:

,,Eitt dæmi er suður-afríski hlauparinn, Caster Semanya, sem er með ytri kynfæri kvenna, en ekkert leg, enga eggjaleiðara, hann er með innri eistu og testósterónmagn í takt við karla. Fólk með DSD upplifir venjulega hormónaþróun á kynþroskaaldri sem passar við erfðafræðilega tilhneigingu þeirra. Oft, til dæmis, mun fólk með 5-ARD eða PAIS líta frekar kvenlegt út sem börn fyrir kynþroska, en síðar þróa með sér mun karlmannlegri eiginleika þegar testósterónframleiðsla fer af alvöru í gang.“

Hér má sjá viðtal við hinn fræga hnefaleikara Imane Khelif í algerísku sjónvarpi árið 2017, sem sagt fyrir 7 árum. Spurning hvort okkar landsfrægu rannsóknarblaðamenn fari á stúfana.

Hér er sama viðtal frá öðru sjónarhorni.

Mynd af vegabréfinu.

kafi


Úr gagnkynhneigðu í samkynhneigt samband- karl í kvennaflokki

Marchiori heitir karlmaður sem kveðst vera kona, hann hét áður Luiz Neto. Dásamleg þessi lög um kynrænt sjálfræði!

Marchiori, 30 ára, kom fyrst út sem trans árið 2023 með tilkynningu sem hneykslaði marga atvinnuhjólabrettaaðdáendur þar sem hann hafði keppt sem karlmaður í næstum tvo áratugi. Í karlaflokki hafði Marchiori tryggt sér tvo brasilíska meistaratitla. Í kjölfar tilkynningarinnar var Marchiori hrósað sem fyrsti trans atvinnumaður Brasilíu á hjólabretti.

Hann byrjaði að eigin sögn á hormónameðferð árið 2022. Hann reynir að sannfæra fólk um að líkami hans hafa misst styrk við meðferðina. Hann var með konu áður en hann varð trans og nú er hann samkynhneigður. Segir sambandið hafa farið úr gagnkynhneigðu í samkynhneigt samband.

Marchiori fékk leyfi til að keppa í atvinnumennsku í kvennaflokki. Hann tók gullverðlaunin í Itacoatiara Pro sem haldin var í júní í ár. Unglingsstúlkur voru m.a. mótherjarnir.

Föður einnar stúlkunnar ofbauð nærvera Marchiori í flokknum. Hann skrifaði, ,,Ég er foreldri íþróttamanns og dóttir mín keppti í Itacoatiara Pro um helgina og mér til undrunar keppti hún á móti Lu Neto," skrifaði Guilherme Alano. ,,Að horfa á 12 ára dóttur mína keppa við íþróttamann sem hafði keppt í yfir 20 ár sem karlmaður var svolítið skrítið. Jafnvel þótt hann taki hormón mun vöðvamassi hans sem íþróttamanns ekki þurrkast út."

Nokkrar konur stigu fram og ásökuðu hann (Lu Neto) um ofbeldi sem hann neitar fyrir. Eftir það bættust fleiri við. Maður að nafni Rodrigues sagði frá í myndbandi hvernig vinur hans beitti konur ofbeldi, fórnarlömbunum til stuðnings.

Fyrir utan fórnarlömbin sem stigu fram fékk færsla Rodrigues þúsundir ,,like" og hundruð athugasemda, sem flestar lýstu hneykslan vegna uppljóstrananna. Margir bentu einnig á að ströng kynvitundarvernd Brasilíu, sem bannar tal eins og ,,rangt kyn", gerði það erfitt að gagnrýna, fordæma eða afhjúpa Marchiori almennilega.

Árið 2019 úrskurðaði hæstiréttur Brasilíu að mismunun gegn ,,LGBTQ samfélagi" væri refsivert og félli undir núverandi kynþáttavernd sem ,,félagslegan rasisma.“ Síðan þá hafa margar konur verið rannsakaðar fyrir að segja trans konur karla.

Fórnarlömbin réðu lögfræðing og var fréttatilkynning birt á Instagram reikningum þeirra. Í yfirlýsingunni, frá lögmannsstofunni Bruna Brigoni, er að finna átakanlegar ásakanir um að sum fórnarlamba Marchiori hafi verið undir lögaldri þegar hann var misnotaður.

Hér Hmá lesa greinina.

Eins og víða hefur verið bent á þá hefur trans fólk mun ríkari réttindi þegar búið er að setja munnkörfu á tjáningu fólks. Það á engum að vera bannað að benda á hið augljósa. Sannleikurinn er sagna bestur.


Bréf til OL nefndarinnar vegna hnefaleikamanna

Íþróttahópur sendi forseta OL nefndarinnar bréf. Tilefnið er þátttaka tveggja hnefaleikmanna sem áður voru bannaðar frá kvennahnefaleikum af Alþjóða hnefaleikasambandinu (IBA) en keppa nú í kvennaflokki á Ólympíuleikunum. Þeir féllu á kynjaprófi.

Mark Adams, talsmaður IOC, varði þessa ákvörðun með því að segja ,,Þetta eru konur í vegabréfum sínum." Þó að umræddir hnefaleikamenn séu skráðir sem konur eru líkamar þeirra greinilega karlkyns og lokaniðurstaðan fyrir konurnar sem þeir berjast við er sú sama - gríðarlega aukin hætta á meiðslum og jafnvel dauða af hverju högginu.

Bréfið er undirritað af alþjóðlegum baráttuhópum og íþróttamönnum. Bréfið undirstrikar ósanngirnina í ákvörðunar IOC og spurt er hvort IOC hafi tekið áhyggjur manna alvarlega um öryggi kvenna í hnefaleikum.

Í bréfinu er farið fram á skimunarpróf fyrir þá sem vilja keppa í kvennaflokki á OL. Það sé hægt að gera með einföldu prófi. Þau segjast stolt af því að styðja íþróttakonur og munu halda því áfram, hvar og hvenær sem er. Bréfið má sjá hér neðar.

Kåre Fog líffræðingur tjáði sig um þetta og segir, ,,Angela Carini keppti við Imane Khelif. Carini er án efa kona en það er annað með Khelif. Hún skilgreinir sig sem konu; en hún hefur bæði X og Y litning, það vil segja samkvæmt líffræðinni er hún maður og er með testósterón á við karlmann.

Læknis/líffræðilega fellur hún sennilega inn í flokkinn DSD. Hún er ekki með ytri kynfæri karlmanns en eftir því sem best er vitað er pungvefur í kviðarholinu."

Kåre Fog heldur áfram, ,,einstaklingur með testósterón á við karlmann hefur slagkraft sem er helmingi meiri en konunnar en Carini var vöruð við að mæta í leikinn, það gæti orðið líkamlega hættulegt fyrir hana (í raun er það sama að kona myndi keppa við karl).

Hætta á alvarlegum meiðslum er mjög mikil eða jafnvel annað og meira sem getur farið illa. Og það er á ábyrgð OL nefndarinnar ef það gerist, segir Ask Vest Christiansen, ph.d og lektor við íþróttaháskólann í Árósum í viðtali við Berlinske.

OL nefndin segir það afgerandi fyrir þátttöku í kvenna- eða karlaflokki sé hvernig menn skilgreina sig.

Ask segir jafnframt að þeir tveir hnefaleikamenn sem um ræðir eigi ekki að keppa í kvennaflokki."

Yfirlýsinu Alþjóða handknattleikssambandsins IBA og bréfið sem hópurinn sendi.

iba yfirlýsing

bréfið


Hetja OL leikanna í Frakklandi er stúlkan

Ítalska boxstelpan, Angela Carini, er hetja. Við eigum að hylla hana eins og sigurvegara. Hún keppti við karlmann(sem fæddist með ódæmigreind kyneinkenni og var úrskurðaður stúlka við fæðingu) sem keppir sem konu. Strákurinn tekur sigurinn á því sem ég vil kalla ofbeldi. Hann hefur XY litninga og framleiðir karlahormón, er með vöxt og styrk karlmanns. Svo þóttist þessi aumingi vera umhugað um hana og ætlar að hugga hana. Maður sem þorir ekki að keppa í flokki með eigin kyni. Sem betur fer leit stúlkan ekki við honum. Vona að allar stelpurnar komi svona fram við hann, sýni honum hvar Davíð keypti ölið. Synd að ekki var púað á hann í höllinni, þar hefði fólk átt að láta í ljós skoðun sína á þessu óréttlæti, karl í konuíþrótt.

Karlmenn sem fara í gegnum kynþroska slá um 162% fastar en stúlkur og því getur svona keppni aldrei verið jöfn.

Til að forðast meiðsl hætti hún. Nú er vonandi að heimurinn taki við sér og stoppi karlmenn af þegar kemur að réttindum kvenna. Breyting á nafni og kennitölu gerir engan að konu og öfugt. Skömm að þessu.

 

Hetja OL 2024. Sigurvegarinn, stóð upp fyrir réttindum kvenna.

ítalinn


mbl.is Umdeildur bardagi á Ólympíuleikunum vekur athygli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað ætli Bubbi Morthens segi við þessu, karlmenn berja konur í hringnum á OL!

Alþjóðaólympíunefndin hefur varið ákvörðun sína um að leyfa tveimur karlmönnum að keppa í hnefaleikakeppni kvenna í París eftir að hafa verið dæmdir úr leik á meistaramótum. Þeir féllu á kynjaprófi. Hjá nefndinni virðast menn halda að XX og XY hverfi bara af því maður óskar þess. Heimska. Engin kynjapróf þarf, annað tveggja ertu fæddur karlmaður eða kona. Annað hvort eru íþróttir fyrir karla eða konur.

Þeir sem sitja í þessari OL nefnd þekkja ekki mun á karlmanni og konu.

Talsmaður Alþjóðaólympíunefndarinnar, Mark Adams, sagði á þriðjudag að báðar ,,konurnar“ hefðu uppfyllt skilyrði til að keppa í kvennakeppninni samkvæmt skilyrðum um þátttöku á Ólympíuleikunum. Í íþróttum eiga engin önnur skilyrði að vera að þú ert fædd kona eða karl. Trans kona er ekki kona og getur aldrei verið. Trans kona getur skilgreint sig þannig en skilgreining gerir karlmann ekki að kvenmanni.

Riley Gaines, fyrrverandi keppnissundkona við háskólann í Kentucky, gagnrýndi Ólympíunefndina og sakaði hana um að vegsama ,,karlmenn sem kýldu konur í andlitið í þeim tilgangi að slá þær meðvitundarlausar". Hárrétt hjá henni. Held að stofna þurfi alþjóðahreyfingu til að vernda kvennaíþróttir. Við erum á góðri leið með að eyðileggja sumar þeirra með þátttöku karlamanna sem skilgreina sig sem konur. Lög um kynrænt sjálfræði hafa hjálpað þessum körlum.

Setjum okkur í þessa stöðu sem Riley lýsir, ,,Ímyndaðu þér að æfa ALLT þitt líf, verða nógu góð til að vinna þér inn sæti í Ólympíuliðinu, vonast eftir Ólympíuverðlaunum...Þá er þér sagt að þú þurfir að berjast við karlmann.“ Í norsku greininni stendur, ,, Fram hefur komið í rannsóknum að slagkraftur karls sem hefur farið í gegnum kynþroska karlmanns er 162% meiri en kvenna“ Hér má lesa færslu þar sem hún biður um virðingu fyrir kvennaíþróttunum.

Lucy Zelic, knattspyrnuskýrandi og talsmaður kvennaíþrótta, gagnrýndi einnig Alþjóðaólympíunefndina fyrir að leyfa tveimur sambískum ,,knattspyrnukonum“ að keppa þrátt fyrir að hafa fallið á kynjaprófum. Barbra Banda, framherji Sambíu, og framherjinn Racheal Kundananji voru báðir bannaðir frá því að spila á Afríkumótinu vegna þess að þeir voru með náttúrulega hátt magn testósterón. Nú fá þessir karlmenn að keppa á OL. Það er eitthvað verulega mikið að hjá OL-nefndinni.

Eins og sjónarspilið á opnunarhátíðinni væri ekki nóg, nú vegsama Ólympíuleikarnir karlmenn sem lemja konur beint í andlitið í þeim tilgangi að slá þær meðvitundarlausar segir baráttukonan Riley.

Trump hefur lýst því yfir að banna eigi trans konur í kvennaíþróttum. Hann veit líka hvað kona er, annað en mótframbjóðandi hans. Þetta tvennt hefur gífurleg áhrif þegar kvennabaráttan er annars vegar. Væri þá ekki gott fyrir konur að fá hann sem forseta Bandaríkjanna?

Fella þarf úr gildi lög um kynrænt sjálfræði til að vernda stúlkur og konur.

Íslenskir fjölmiðlar eru samir við sig. Fjalla ekki um rétt kvenna og stúlkna þegar trans konur eru annars vegar. Meðvirkni þeirra er óhugnanleg.

Greinina er hægt að lesa hér.

Norsk grein um sama efni hér.


Æðra dómstig í Bretlandi bannar hormónameðferðir fyrir börn

í því skyni að ,,breyta um kyn“ sem er að sjálfsögðu ekki hægt. Menn losna ekki við XX eða XY litningana sem gera þá annað tveggja, karl eða konu. Dómstólinn benti á Cass skýrsluna og sagði innihald hennar vera leiðavísir í málaflokknum í Bretlandi. Eins og segir í dómnum ,,Úttekt Dr. Cass leiddi í ljós að það voru ekki nægar vísbendingar um að kynþroskablokkar séu öruggir og áhrifaríkir fyrir börn með kynáttunarvanda og kynósamræmi." Innihald skýrslunnar á sér ekki landamæri og því ætti hún að gilda hér á landi líka.

Mikið framfaraspor í baráttu þeirra sem hafa barist gegn þessari tilraunastarfsemi sem hefur verið óáreitt í allt of mörg ár. Hversu mörg börn hafa skemmt sig vegna lyfjanna verður sennilega aldrei vitað. Í sumum löndum er enn að þessu. Tilraunir á börnum, hver leyfir slíkt! Er það landlæknir Alma Möller hér á landi? Það er athyglisvert að miðaldra íslenskir karlmenn, sem annað tveggja skilgreina sig sem konu eða tvíkynja, setja sig upp á móti niðurstöðu dómsins. Af hverju? Karlmenn sem hafa ekki farið í gegnum kynþroskaskeið unglingsstúlku og vita ekkert hvað þeir eru að tala um hvað stúlkurnar varðar.

Dorte Toft blaðamaður í Danaveldi skrifaði tvær greinar um stöðu mála í Danmörku, sem er miður góð. Trans samfélagið þar eins og hér á landi heldur uppi upplýsingaóreiðu um málaflokkinn.

Greinarnar heita ,,Það er eitthvað rotið í Danmörku“ og eru á ensku. Hér og hér geta menn lesið greinarnar.

Formaður Samtaka 22 fjallaði um dóminn og fréttaflutning Ruv af málinu. Auðvitað var ekki við nokkru vitrænu að búast frá fréttastofu Ruv. Hvet lesendur til að hlusta á formanninn. Hlustið hér.


Nornaveiðar

Í desember 2023 birtist grein á smp.no í Noregi. Höfundur greinarinnar er Aud Farstad sem fylgist með menningarstríðinu sem hefur geisað um víða veröld og var hvatning að skrifum hennar.

Þetta eru tröll með marga hausa, miðlægi þátturinn er eyðilegging kvenréttinda með nýrri kynjahugmyndafræði. Noregur er að mörgu leyti verstur í flokknum með öfgafull lög um breytingu á lagalegu kyni (sama á við um Ísland í dag). Í reynd afnema lögin líffræðina með því að leyfa hverjum og einum að skilgreina eigið kyn eftir því hvernig þeim líður.

Hvað er kona

Ég hef unnið með kvennasögu mestan hluta ævinnar og hef aldrei séð jafn mörg vandamál sem snúa að konum. Þetta snýst í raun um baráttuna fyrir því hvað kona er. Ef maður getur ekki skilgreint ,,konu" missir maður grundvöllinn til að skilgreina réttindi og skyldur. Sú staðreynd að karlar geti skilgreint sig sem konur hefur leitt til þess að konur eru þvingaðar alls staðar í samfélaginu, frá fangelsum til íþrótta, frá áfallamiðstöðvum til bókmenntaverðlauna.

Ég kynntist þessari hugmyndafræði fyrst þegar konur í Vinstri sósíalistaflokknum aflýstu viðburði með breska femínistanum Julie Bindel árið 2017 vegna þess að hún átti að vera ,,transfóbísk." Ég var í uppnámi yfir því að hún var hætt við vegna meintra skoðana sinna á allt öðru efni en því sem hún átti að tala um. Síðan þá hef ég fylgst með þessu stríði gegn konum með vaxandi kvíða, gremju og sorg. Sem betur fer kann ég ensku því þeir sem fá aðeins upplýsingar á norsku, eru í vandræðum. Hér á landi má lesa – allt frá fjölmiðlum til ríkis og stofnana – að það sé hægt að skipta um kyn, að kynin geti verið mörg, að maður geti fæðst í ,,röngum" líkama, að það sé ,,án aðgreiningar" að telja karla sem konur (sama gildir með Íslendinga).

Það kostar

Anne Kalvig Ho skrifaði bók um kynjahugmyndafræðina. Hún þurfti að gefa bókina út sjálf. En það kostar sitt. Aud Farstad telur bókina vel skrifaða.

Fyrr á þessu ári sagði Kalvig upp starfi sínu sem prófessor við Háskólann í Stavanger eftir langvarandi einelti. Hún er ein af þessum nútímanornum sem trúir því að það sé ómögulegt að skipta um kyn, að konur hafi réttilega haldið að þær séu ákveðið kyn og að karlar geti aldrei orðið konur sama hvað þeir skilgreina sig sem. Það eru konur eins og hún um allan heim. Þær hafa verið ofsóttir, áreittir og margir hafa misst vinnuna (Á Íslandi fór grunnskólakennari fram á atvinnumissi annars vegna sömu skoðunar og Kalvig hefur).

Höfundur: J. K. Rowling

Frægust þessara norna er rithöfundurinn J.K. Rowling, sem er hatursefni trans aktívista um allan heim, þrátt fyrir að hún hafi aldrei sagt neitt svokallað ,,transfóbískt" á ævinni.

Kathleen Stock, prófessor í heimspeki við háskólann í Sussex, þurfti að lokum að segja af sér eftir mótmæli, veggspjöld um allan háskólann og deilur. Þegar hún átti að halda fyrirlestur í Oxford-háskóla var hún umkringd lífvörðum. Hún skrifaði bókina ,,Material girls. Hvers vegna raunveruleikinn skiptir máli fyrir femínisma.“

Önnur kona, blaðakonan Helen Joyce, sem hefur skrifað bókina ,,Trans. Þegar hugmyndafræði mætir raunveruleikanum", hún verður að hafa lögreglufylgd. Engin þessara bóka hefur verið þýdd á norsku. Það er heldur ekki bókin ,,Óafturkræfar skemmdir. Trans æðið tælir dætur okkar", skrifað af bandaríska blaðamanninum Abigail Shrier. Hún er enn ein nornin sem hefur upplifað afbókanir og að menn vilji ekki auglýsa bókina hennar.

Sharron Davis gaf út bókina ,,Unfair Play. Baráttan um kvennaíþróttir.“ Bókin er full af dæmum og lýsir gremju kvenna, þær sakna kvennaíþróttanna því karlar sem skilgreina sig sem konur fá að taka þátt í þeim. Þrír karlar unnu í 800 m hlaupi kvenna á OL 2016. Þjálfari Melissu Bishop, sem lenti í fjórða sæti, sagði frá hótunum sem hann fékk frá kanadísku ólympíunefndinni ef hann vogaði sér að tjá sig um óréttlætið í þessu.

Minnir á nornaréttarhöldin

Venjulegar konur fara ekki varhluta af nornaveiðunum. Kvenaðgerðasinninn Kellie-Jay Keen þarf að borga fyrir lífverði þegar hún er á almannafæri. Hún skipuleggur opna fundi á torgum í borginni þar sem konur geta stigið fram og talað. Það er dásamlegt að sjá konur sem hafa kannski aldrei talað opinberlega áður, standa upp og oft með skjálfandi rödd tala um lífið og hvað snertir þær. Þetta gera þær þrátt fyrir mótmæli hundruð mómælenda, karla í kjólum, fólk með grímur, hrópandi slagorð, áreitir fundagersti og með mótmælaspjöld sem hóta konum afhöfðun. Á Nýja-Sjálandi var Kellie-Jay Keen næstum drepin af nokkur hundruð manna múg. Aðrir slösuðust alvarlega. Þessi ógnvekjandi sjón af morðóðum múg geta allir orðið vitni að á Youtube

Fleiri en ég hugsaði um opinberu nornaréttarhöldin sem við héldum að við hefðum sagt skilið við fyrir nokkur hundruð árum hér á Vesturlöndum.

Lesbískar konur verða sérstaklega illa úti. Margir karlmenn sem segjast vera konur halda því jafnvel fram að þeir séu lesbíur. Þessir menn hafa eyðilagt samkomustaði fyrir lesbíur um allan heim. Á sumum stöðum í Ástralíu er lesbíum bannað að halda samkomur nema karlmenn fái aðgang. Tonje Gjevjon frá Noregi hefur tekið þátt í réttindabaráttu lesbía um árabil og hefur orðið fyrir svo miklu áreiti og afbókunum að hún getur ekki starfað lengur sem listamaður.

Allt sem þessar nornir halda fram er að það sé ekki mögulegt fyrir karlmenn að skipta um kyn. Það er líffræðileg staðreynd. Að auki snýst jörðin um sólina segir hún að lokum.

Hér má lesa greinina.


Treysta sérfræðingunum í grunnskólanum segir Þorsteinn Sæberg formaður Skólastjórafélagsins

Þorsteinn formaður Skólastjórafélagsins og Björn framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs leiddu saman hesta sína á Sprengisandi í gær. Eins og siður KÍ manna er fór formaður skólastjórafélagsins inn á allt aðrar brautir heldur en umræðuefnið var, eða of oft. Björn benti á það. Áhugavert spjall sem vert er að leggja hlustir við.

Þorsteini varð tíðrætt um sérfræðingana sem vinna innan skólans og benti á að við eigum að treysta þessum sérfæðingum. Hann sagði nánast öðrum að þegja. Hann á væntanlega við grunnskólakennara og faglega leiðtoga skólanna sem eru stjórnendur, hans fólk. Sérfræðingar sem vilja leyndarhyggju og telja það þjóni börnum og samfélagi. Hann sagði frá leiðu nemendunum sem fengu námsmat sitt í hendur en láðist að segja frá glöðu nemendunum sem voru sátt við árangur af vinnu sinni.

Nei Þorsteinn við getum treyst sérfræðingunum. Foreldrar, samfélagið og gagnrýnir kennarar þurfa að vera vakandi yfir því sem kennarar gera í einstaka skóla. Það hefur sýnst sig með trans-hugmyndafræðina að svokölluðum sérfræðingum er ekki að fullu treystandi. Það má lesa um hérhérhér, hérhér og hér. Vissulega má segja að þessi kennari hafa toppað allt sem sérfræðingur. Það er illa komið fyrir skólakerfi sem elur á ranghugmyndum um líffræði mannsins.

Þegar sérfræðingar Þorsteins ljúga að börnum að það séu til mörg kyn, að einhver hafi getið sér til um kyn barns, að börn eigi eftir að finna út kynið og að maður geti skipt um kyn þá er fokið í flest skjól í grunnskólanum. Hjá sérfræðingunum! 

Þegar sérfræðingar Þorsteins taka upp á sitt einsdæmi að breyta íslenskunni til að þóknast ímynduðum kynjum þá er ekki undra að fólk hugsi sitt um grunnskólann. Þetta ver Þorsteinn ásamt stjórn Kennarasambands Íslands. Hann samþykkti meira að segja að vera í forsvari fyrir svona vitleysu, að breyta íslenskunni til að þóknast ímynduðum kynjum. Sérfræðingar, munum það!

Trans-hugmyndafræði er lífsstíll sem ákveðinn hópur í samfélaginu ákveður að lifa eftir. Gott og vel það má fólk. En að grunnskólinn, þar sem sérfræðingar starfa, skuli halda uppi ranghugmyndum um líffræðina er forkastanlegt. Þorsteinn ætti að kynna Cass skýrsluna fyrir sérfræðingunum sínum. 

Sama með flöggun trans-fánans. Faglegir leiðtogar taka ákvörðun um að flagga við skóla fyrir andlega veikum börnum sem eiga í erfiðleika með sjálfsmynd sína og geðræna heilsu. Kallast á sérfræðimáli ,,fögnum fjölbreytileikanum.“

Trans- fáninn hefur ekkert með fjölbreytileika mannlífsins að gera. Hann er í andstöðu við mörg trúarbrögð, skoðun manna á umdeildri hugmyndafræði og hann auglýsir tilfinningar fólks um hvernig það vill skilgreina sig. Trans-fáninn fer þvert á líffræði mannskepnunnar sem leiðtogar skóla eru tilbúnir að fleygja út um gluggann. Ef þetta eru sérfræðingarnir sem við eigum að treysta blint á er ég ekki hissa að fólk rísi upp. Bloggari veltir fyrir sér hvort stjórnendur skóla hafi kynnst sér forsögu fánans sem þeir flagga fyrir ung saklaus börn sem mæta í skólann, skyldunám.

Lífsskoðunarfélag eins og einn bloggari kallar það hefur greiðan aðgang að skólabörnum með samþykki bæjaryfirvalda sem borga milljónir fyrir það. Með samþykki sérfræðinga Þorsteins formanns Skólastjórafélagsins.

Hins vegar get ég verið sammála Þorsteini að það er áhyggjuefni hve fáir sæki inn í grunnskólakennaranámið og vilja starfa í grunnskólanum. Kemur bloggara ekki á óvart. Fjölgun námsára á þar stóran þátt. Að mati bloggara var það óráð að fjölga námsárunum úr þremur í fimm. Grunnmenntun grunnskólakennara ætti að vera þrjú ár og síðan gætu þeir sem hefðu áhuga og nennu að bæta við sig meistaranámi með sérhæfingu. Grunnmenntun grunnskólakennara hefur hrakað eins og sjá mér hér, en þetta var m.a. gert í þeirri von að vinna á kennaraskortinum.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband