Þórey Unnur Árnadóttir ,,fagnar“ aftöku föður, eigimanns og sonar

Það er áhugavert að standa á hliðarlínunni og fylgjast með umræðunni um aftöku Kirk. Manns sem gat ekki varið sig þegar leyniskytta kom sér fyrir á þaki í mikill fjarlægð. Í einu viðtali kom fram að auðvelt sé að komast yfir svona vopn enda notaða á veiðar sem eru algengar á því svæði sem Kirk var tekinn af lífi.

Menn eins og Jóhannes Þór Skúlason framármaður í Ferðaþjónustunni. Illugi Jökulsson, Egill Helgason, Guðmundur Andri Thorsson, Andri Þorvarðarson sögukennari, Ísleifur Jónsson og fleiri og fleiri höfðu mikla þörf fyrir að tjá sig um morðið og sögðu allt að því ,,hann getur sjálfum um sér kennt.“

Þórey Unnur Árnadóttir sagði börn Kirks betur komin án hans. Konunni finnst í góðu lagi að börn hans verði föðurlaus og hann tekinn af lífi af því henni líkar ekki skoðun hans. Mannvonska eða hvaða orð er hægt að nota um fólk sem vill börnum svona illt.

þoeyr

 

 

 

 

 

 

Sorglegast er að sjá þegar blaðamenn á blöðum sem eiga að vera hlutlaus, ekki taka afstöðu, láta andúð sína í ljós á manninum og bera í bætifláka fyrir AFTÖKUNA í gegnum skrif á miðlum sem almenningur styrkir. Hvað liggur að baki?

Nefndir menn setja AFTÖKU í samhengi við orð Kirks. Lesa má úr mörgum ummælum að hann hafi nánast verið réttdræpur því hann notaði orð sem þeim líkaði ekki. Að menn séu réttdræpir fyrir orð og skoðun er fulllangt gengið. Öfgar.

Ferðaþjónustan á Íslandi notar andlit Jóhannesar Þórs Skúlasonar út á við. Ferðaþjónusta þarf nú að réttlæta af hverju þessi maður á að koma fram fyrir þeirra hönd um leið og hann réttlætir aftöku á ungum manni, föður tveggja ungra barna og eiginmanns, með einhverju samhengi. Hvað gengur forsvarsmanni ferðaþjónustunnar til?

Hvers konar maður þarftu að vera til að fagna aftöku, eða réttlæta, sem fór fram í beinni útsendingu þar sem fjöldinn allur af ungu fólki, eiginkona hins látna og ung börn voru áhorfendur. Áfall sem margt af þessu unga fólki mun glíma við á komandi árum.

Siðgæði fólks sem lætur svona út úr sér getur ekki verið upp á marga fiska.

 


Kvenréttindafélag Íslands er hitt trans félagið á Íslandi

Það er synd og skömm að sjá Kvenréttindafélag Íslands fara í hundana. Þær og þeir (kvengervlar eru í félaginu) hafa gleymt baráttumálum kvenna til að þóknast trans hugmyndafræðinni.

Í reynd má segja að trans aðgerðasinnar hafi yfirtekið félag sem byggði á réttindabaráttu kvenna.

Kvenréttindafélagið er gott dæmi um það sem Reem Alsalem, sérstakur erindreki um ofbeldi gegn konum og stúlkum, bendir á þegar hún ræðir um ofbeldi gagnvart konum og börnum.

Kvenréttindafélagið berst nú sem önnur trans hreyfing á Íslandi og fær til þess fé úr opinberum sjóðum. Skömm að almenningur sé látinn greiða fyrir áróður trans málefna félagsins. Það þarf ekki annað en hlusta á forsvarsmenn félagsins og kíkja á snjáldursíðu þeirra.

Sérfræðingur Sameinuðu þjóðanna, Reem Alsalem, bendir réttilega á, í nýútkominni skýrslu, að árétta beri mikilvægi kyns í lýsingu á ofbeldi gegn konum og stúlkum. Það verður að endurreisa mikilvægi kyns og reynslu af mismunun og ofbeldi til að koma í veg fyrir og bregðast við vaxandi ofbeldi gegn konum og stúlkum á alþjóðavísu segir hún.

Þessi orð eru ekki sögð út í bláinn. Víða um heim þykjast karlar konur til að komast inn í kvennafangelsi. Nýlegt dæmi í Noregi sýnir hve mikilvægt er að kynin (kk eða kvk) séu rétt. Tveir karlmenn NAUÐGUÐU 13 ára stúlku, þeir skilgreina sig sem konur og vilja láta tala um sig sem konur. Þeir vilja afplána í kvennafangelsi.

Að sjálfsögðu skekur málið samfélagið í Noregi, hver vill tvo nauðgara inn í kvennafangelsi? Hver vill láta skrá glæpinn á konur? Trans hreyfingar hafa talað fyrir því að það sé í góðu lagi, er það svo? Rökin eru að karlar eru konur ef þeir segjast vera það.

Finnst konum, líka þeim sem eru í Kvenréttindafélagi Íslands, í lagi að nauðgarar afpláni í kvennafangelsi og að brotin séu skráð á konur?

Verðum að halda í sannleikann

Reem Alsalem heldur áfram; að viðurkenna ekki þessa hlutlægu staðreynd um kynin hefur dregið úr sameiginlegri getu okkar til að lýsa og skilja ofbeldi karla gegn konum og stúlkum og til að bregðast við því á áhrifaríkan hátt. Maður hefði haldið að Kvenréttindafélagi Íslands væri umhugað um konur og börn. Efast!

Skýrsla hennar varpar ljósi á hvernig rof á kynbundnu tungumáli, og samruni kyns og kynvitundar, hefur leitt til gallaðra gagna, ófullnægjandi þjónustu við kvenkyns fórnarlömb ofbeldis og almennt veikari vernd fyrir konur og stúlkur, þar á meðal lesbíur og stúlkur sem upplifa ónot í eigin líkama.

Kvenréttindafélag Íslands hefur verið þátttakandi í að afmá orð kvenna og gerst trans aðgerðasinnar til að koma konum og kvennaorðum á kné. Notuð eru tilbúin orð trans hreyfinga sem hafa í sjálfu sér enga merkingu, allt í þeirri vegferð að koma kvennaorðum burt til að mæta því rugli sem heitir ,,kynjaleysi“.

Hefði maður ekki haldið að Kvenréttindafélag Íslands stæði á torgum og strætum og berðust fyrir konur og kvennaorðum líkt og hefur verið víða annars staðar í heiminum.

Nei þetta félag er orðið hinn trans félagsskapurinn.

 

351779107_930894214649894_5631589722597731477_n


Félagsleg umskipti getur skapað börnum hættu

Samfélagssmit er raunveruleiki þegar transhugmyndafræðin er annars vegar, menn geta ekki neitað fyrir það.  

Víða er bent á þá miklu aukningu sem er meðal stúlkna sem allt í einu segja sig stráka, eða kynlausa. Fagfólk m.a. norsku læknarnir tala um það og lýsa áhyggjum sínum. Á slíkt ber að hlusta, ekki bara í Noregi heldur á Íslandi líka. Alma Möller hefur gefið upp sinn hug, hún hlutar ekki á vísindi og staðreyndir.

Í Cass skýrslunni  kemur fram að jafnvel félagsleg umskipti (t.d. að breyta nöfnum og fornöfnum) sé ekki hlutlaus athöfn og geti stuðlað að langtíma afleiðingum fyrir börn bæði sálrænum og þroskalegum. Skýrslan mælir með varfærinni, gagnreyndri nálgun á kynbundinni vanlíðan hjá börnum, sem miðast við vernd og klínískt eftirlit frekar en staðfestingu eins og tákn gera, s.s. fáninn.

Það er ekki að ástæðulausu að foreldrar á Akureyri hafi áhyggjur. Bærinn er undirlagður af áróðurstáknum og stofnanir bæjarins eru hvað verstar.

Nú bíða foreldrarnir að Akureyri.net og Vikublaðið birti grein eftir þau. Mál sem varðar foreldra og börn á Akureyri. Útlitið með birtingu er ekki bjart.

469441385_122196185960196501_7418098250751653575_n


Ekkert stolt yfir þessum sigri þó Íslendingur sé

Það er ekki hægt að fagna þegar svindlað er. Það gerði Íslendingur í frísbílgolfi. Strákur sem segist stelpa sigraði kvennaflokk, en ekki hvað. Tveir karlmenn sigra!

Aumingjaleg hegðun af hálfu íslenska karlmannsins, sem skilgreinir sig konu. Við eigum ekki að fagna sigri sem fenginn er með óheiðarlegum hætti. Fyrir vikið hafði hann, kvengervillinn, sigur af stúlku sem átti fullan rétt á sigrinum í kvennaflokki. Stelpur eiga að þegja og hlýða.

Nú hafa Íslendingar skipað sér sess með þeim þjóðum sem tefla fram karlmanni, sem segist kona, í stað konu.

Íþróttahreyfingin ætti að skammast sín. Það er hennar að banna þátttöku karla, í kvennaflokkum, jafnvel þó þeir skilgreini sig konu. Skilgreiningin er nefnilega í kollinum, ekki líkamanum.

Trans-hugmyndafræðin grefur undan kvennaíþróttinni og réttindum kvenna, þetta er gott dæmi um það.

íslenskur karl

 


Kynrænt sjálfræði skekkir tölfræði afbrota

Fjölmiðill segir frá ,,konu“ sem beraði sig framan við börn. Hér er um karlmann að ræða sem skilgreinir sig konu.

Blaðamaður talar um hann sem ,,konu“ af því viðkomandi skilgreinir sig sem slíka og því er trúverðugleiki fréttarinnar lítill. Talar um typpi konunnar.  Heimska!

Það er engin kona með typpi. Lög um kynrænt sjálfræði hafa opnað á þessa vitleysu.

"A child who was playing on the monkey bars in the park saw Mart holding HER PENIS and wiggling it at her"

Sannleikanum er snúið á hvolf og er eitt dæmi um hvernig transhugmyndafræðin skekkir tölfræði afbrota. Hversu oft gerist það að konur beri sig fyrir framan börn? Hvað eru líkurnar miklar?

Segjum sannleikann, bara karlmaður getur sýnt typpi samkvæmt líffræðinni.

472597734_1043564357800335_8373349978436957158_n


Trans hugmyndafræðin talar bara um tvö kyn

Þegar maður fræðist um trans hugmyndafræðina kemur skýrt fram að það er talað fyrir tveimur kynjum. Í það minnsta hafa önnur ekki verið nefnd.

Þeir sem hafa hugmyndafræðina að leiðarljósi og hafa sömu heimsku skoðun og Sigmar Guðmundsson þingmaður, að strákur geti orðið stelpa og öfugt, er tala alltaf um tvö kyn, upplifa sig sem konu eða karl, stelpu eða strák.

Það er í sjálfu sér mjög athyglisvert, þó að hugmyndafræðin tali um mörg (ímynduð) kyn að þá er aldrei talað um að karlmaður ,,breyti“ sér í óskilgreint kyn eða eitthvað af kynjunum sem þau halda að séu til. Kona ,,breytir“ sér í karlmann, ekkert annað kyn. Karl og kona!

Nei það er alltaf kvenkynið og karlkynið. Kona ,,breytir“ sér í karl, karl ,,breytir“ sér í konu. Tvö kyn.

Kynvitund og kyntjáning er í kolli fólks, er lífsstíll hjá sumum og fylgni við hugmyndafræði hjá öðrum. Hefur ekkert með líffræðina að gera. Menn geta tjáð sig alla vega burtséð frá hvort viðkomandi er strákur eða stelpa. Tvö kyn.

Nú má Jóhannes Þór Skúlason og lífsskoðunarfélagið Samtökin 78 útskýra af hverju eru þessi tvö kyn eru valin þegar menn ,,breyta kyni sínu“ en ekki önnur.


Sigmar Guðmundsson segir alla mega tjá sig sama hve heimskuleg skoðunin sé

og því verðum við að hlusta á þá heimskulegu skoðun að kynin séu fleiri en tvö, að barni sé úthlutað kyni og annað sem trans-hugmyndafræðin boðar. Hins vegar er verra þegar þessi heimskulega skoðun nær fótfestu í skólakerfinu og skólabókum, borið á borð fyrir börn. Þá eiga menn að stíga niður fæti.

Þeir sem tala fyrir sannleikanum, tvö kyn, nota ekki hatursorðræðu, þeir nota orðræðu sem hinir hata, það er mikill munur á! Sannleikur og lygi.

Sigmar Guðmundsson er einn þeirra sem elur á lyginni og heimskum skoðunum, eins og kynin séu mörg og hægt sé að skipta um kyn o.s.frv. og menn fara með í leik- og grunnskóla. Ætli Sigmar haldi þeirri heimsku skoðun fram að fæðingar- og erfðagalli barns sé sérstakt kyn? Getur hann haldið þeirri heimsku skoðun sinni fram án afskiptasemi annarra, sennilega. Hann hyllir trans-hugmyndafræðina.

Það er ljóst að Sigmar Guðmundsson særir unglingsstúlkur, sem tiltekin hóp, þegar hann heldur fram að strákar geti orðið stelpur. Það er ekki hægt líffræðilega. Sé ein af heimsku skoðunum Sigmars að drengir geti haft á klæðum og með túrverki þá særir hann ungar stúlkur, kvenkynið veit að líffræðileg bygging karlkynsins gerir það ekki mögulegt.

Sigmar er líka á þeirri heimsku skoðun að strákar megi nota kvennarými ef hann trúir trans hugmyndafræðinni. Stelpur vita hve viðkvæmt það er að fá stráka inn á kvennaklósett, sér í lagi á grunn- og framhaldsskólaaldri, hvað þá í baðklefa. Hann særir stúlkur og meiðir, en í nafni málfrelsis má hann það. Enginn reynir að þagga niður í honum, ekki einu sinni foreldrar stúlknanna sem hann særir.

Hver reynir að þagga niður í þessum heimsku skoðunum þingmannsins sem skólabörn þurfa að hlusta á í leik- og grunnskóla?

Hugmyndafræðin gagnrýnd ekki fólk

Fólk sem talar gegn trans-hugmyndafræðinni hatar ekki kyngervla eða þá sem líður illa í eigin skinni. Menn eru í raun ósammála hugmyndafræðinni og það er ekki hatur á einstaklingum sem tengja sig við hugmyndafræðina. Mönnum er sama hvað fullorðið fólk gerir, skilgreinir sig og hagar sínu lífi. Hlífið börnum við þessari hugmyndafræði á skólaskyldualdri.

Það er dæmigert einkenni sektarhugsunar, að sannfæra fylgjendur um að utanaðkomandi heimur fyrirlíti þá, að hver andstæð rödd sé óvinur, og að öryggi sé aðeins innan hópsins. Minnir á sértúrasöfnuð.

Engu að síður er í mörgum einangruðum hreyfingum reynt að mála það upp eins og fólk hafi eitthvað á móti tilveru kyngervla. Skoðun sem hefur náð fótfestu meðal stjórnmálamanna.

Heimska skoðun er, samkvæmt Sigmari, leyfilegt að hafa. Skoðun getur hins vegar meitt börn eins eins og norsku læknarnir skrifuðu um.

Stjórnmálamenn hafa hoppað á vagn heimskunnar. Páll Vilhjálmsson orðaði það vel um dusilmennið Einar Þorsteinsson. ,,Fábjánum í Framsókn er ekki viðbjargandi.“

 

Smelltu á myndina til að fræðast.

með sigmari

 


Ágæti skólastjóri

Það er dapurleg sjón að sjá að skólinn fagni, með flöggun trans fána, fæðingarkvillum barna, sjaldgæfum fæðingar- eða genakvilla.

Það er líka dapurlegt að sjá skólann hylla andlega óstöðug börn sem eiga í sjálfsmyndarvanda. Það væri forvitnilegt að heyra af hverju skólastjóranum þyki viðeigandi að flagga fyrir viðkvæmum hópi barna.

Skólastjórnandi sem flaggar trans fána styður mjög umdeilda hugmyndafræði og verður að vera vel að sér um hvað felst í því sem skólinn styður. Til að skilja hvað er að baki fánanum þarf að leita sér upplýsinga.

Gera verður ráð fyrir að skólastjórnendur skilji hugmyndafræðina sem trans fáninn gengur út á og allt sem henni viðkemur, þar sem stjórnendur styðja hana á þennan hátt. Skólinn gefur til kynna að hann trúi á, styðji og muni staðfesta trans sjálfsmynd – stelpur sem halda að þær séu strákar eða öfugt – þrátt fyrir að allt bendi til þess að þetta sé hættuleg nálgun. Það hefur m.a. Cass skýrslan fjallað um sem er skrifuð af þekktum barnalækni í Bretlandi. Mörg lönd víða um heim hafa breytt nálgun sinni vegna skýrslunnar og trans fáninn er þar á meðal.

Í Cass skýrslunni, sem á að vera skyldulesning þeirra sem koma að skólamálum, kemur fram að jafnvel félagsleg umskipti (t.d. að breyta nöfnum og fornöfnum) sé ekki hlutlaus athöfn og geti stuðlað að langtíma afleiðingum fyrir börn bæði sálrænum og þroskalegum.

Breyting fornafna gerir börnum ekkert gott eins og lesa má í grein eins fremsta sérfræðings í kynjamálum í Finnlandi Dr. Riittakerttu Kaltiala. Í greininni segir hún ,,Vísbendingar úr samanlagt 12 rannsóknum hingað til sýna að þegar börn með kynbreytilega hegðun eru látin þroskast náttúrulega, þá sættir mikill meirihluti - ,,fjórir af hverjum fimm," sig við líkama sinn og læra að sætta sig við kyn sitt segir Kaltiala. Þegar þeir eru félagslega umbreyttir gerir nánast enginn það.“ Í ljósi þessara orða er ábyrgð skóla, stjórnenda og kennara mikil.

Innan veggja skólanna eru börn af ólíkum uppruna og með ólík trúarbrögð. Því ber  skólastjórnendum og kennurum að virða hlutlægnireglu, jafnræðisreglu og meðalhófsregluna þegar kemur að táknum, m.a. fána, sem hylla svo mjög umdeilda hugmyndafræði.

Það er ekki hlutverk skóla að hylla hugmyndafræði sem á sér stað inni í kolli barns sem getur haft skaðlegar afleiðingar í för með sér fyrir barnið eins og sérfræðingar benda á. Þess vegna er mikilvægt að greina á milli þess sem ákvarðast af kynjalíffræði og ,,kynvitundar" sem byggjast á  tilfinningum og sjálfsmyndarruglingi.

 465271929_992913219544771_6232979659936083435_n


Þórunn Sveibjarnardóttir með áróður í þinginu

Mynd af Þórunni Sveinbjarnardóttur sýndi þingi, þjóð og lýðnum mikila vanvirðingu við þingsetningu.

Hún ákvað að vara með áróður í formi brjóstnælu fyrir minnihlutahóp sem vill ráða samfélaginu.

Henni fannst engin, og hefur ekki fundist, ástæða til að bera brjóstnælu annarra minnihlutahópa. Engin börn sem búa við skert lífsgæði fá athygli hennar. 

Þórunni fannst ekki ástæða að hafa ekki gult í barminum, sem er áminning um þá sem falla fyrir eigin hendi.

Allir þeir sem settu þingið niður með áróðurstákni er landi og þjóð til skammar. 

Er áróður inni í þingsal ekki bannaður?

469497531_1019011123588992_6680652882712664165_n


Það er ekki refsivert að segja hann þó viðkomandi vilji nota hún

Það var ánægjulegt að sjá dómsniðurstöðuna frá réttinum í Lyngby í Danmörku. Dómurinn féll í gær. Hans var beðið með eftirvæntingu því um fordæmisgefandi dóm er að ræða.

Í stuttu máli snýst málið um tjáningarfrelsi og hvort hagsmunir minnihlutahópa eigi að vega þyngra en hagsmunir meirihluta.

Dómarinn dæmdi Lotte Ingerslev í hag. Það er ekki móðgandi eða ærumeiðandi að vísa til karlmanns með líffræðilegu kyni hans né heldur að nota myndir sem hann sjálfur hafði póstað.  

Kvengervillinn Nadia Jacobsen fór í einkamál við Lotte Ingerslev því hún notaði persónufornafnið hann þegar hún skrifaði um tillögu Danska knattspyrnusambandsins (DBU), en Nadia vill láta tala um sig sem konu og nota fornafnið hún. Hann sat í ráðgefandi nefnd fyrir DBU.

Málið var tvenns konar, vegna myndbirtingar Lotte í tengslum við DBU færsluna á bloggsíðunni transkoen.dk og notkun persónufornafnsins.

Myndirnar tók Lotte af síðum þar sem Nadia hafði sjálfur birt m.a. á  klámsíðum. Hún notaði þær í tengslum við skrifin þar sem hún mótmælir tillögu m.a. Nadiu um að drengir fái aðgang að íþróttum stúlkna og búningsklefum þeirra.

Nadia taldi hvoru tveggja hafa verið móðgandi og ærumeiðandi, að Lotte hafi notað myndirnar og notað persónufornafnið hann.

Dómurinn segir

Lotte er ekki dæmd fyrir að móðga hann eða ærumeið vegna myndbirtingarinnar. Það vó þyngst að hann sjálfur hafði birt þær og gat átt von á að þeim yrði dreift sagði dómarinn.

Dómarinn dæmdi Lotte Ingerslev til að greiða skaðabætur því hann túlkar myndbirtingu og upplýsingar um fetískar netsögur Nadiu Jacobsen sem ákveðna keðjuverkun. Það þótti ekki við hæfi. Hún þarf að borga 15 þúsund d. kr. en hann fór fram á 100 þúsund.

Lotte er saklaus, hún er ekki talin hafa móðgað, áreitt eða ærumeitt hann með því að nota fornafn sem vísar í líffræðilegt kyn hans. Hún hefur, og reyndar allir, heimild til að vísa til fæðingarkyns einstaklings. Það er ekki refsivert.

Þessu ber að fagna og segja til hamingju konur og þeir sem beygja sig ekki fyrir trans hugmyndafræðina því þetta er undan rifjum þeirra runnið.

Fjölmiðlar

Hugmyndafræði trans samfélagsins bæði í útlöndum og hér heima hafa fundið upp alls konar fornöfn á fólk sem það getur notað. Í hvaða tilgangi má guð einn vita. Við erum annað tveggja, hann eða hún. Meirihlutinn á ekki að beygja sig undir ákvörðun minnihluta.

Með dómnum er enginn neyddur til að nota annað fornafn en líffræðilegt kyn viðkomandi segir til um.

Það má benda fjölmiðlum á, að það er virðingarleysi við kvenkynið að nota persónufornafnið hún um karlmann þegar fréttir eru sagðar af kvengervlum.  

Eitt af ljótari dæmunum eru karlmennirnir sem nauðguðu 13 ára barni í Noregi og vilja láta kalla sig konur og hún/þær í dómssal.

Virðingarleysið algert.

dómurinn


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband