Fleiri vilja losna við systursamtök transsamtakanna 78

úr kennslu í grunnskólum Kaupmannahafnar. Bæjarstjórinn sem fer með málefni unga fólksins (børne- og ungdomsborgmester i København) vonar að samningur verði ekki endurnýjaður við Nonstormerne (sbr.transsamtökin 78). Fleiri stjórnmálamenn hallast að sömu skoðun. Umræðan um samtökin fór aftur af stað eftir að þau réðu einstakling til að hanna fræðsluefni fyrir börn í 1.-4. bekk (í Danmörku er það 0.-3. klasse). Fréttin kom í Berliske tidende (því miður opnast ekki öll fréttin).

Jakob telur kennslu samtakanna ekki eiga heima hjá 6-7 ára gömlum börnum og þar er ég sammála honum. Börnin eiga ekki að hugsa um þessi mál segir hann. Leikskólar hér á landi flagga veggspjöldum með staðreyndarvillum og segjast vilja upplýsa börn, 2-6 ára, og foreldra að kynin geti verið fleiri en tvö. Það er staðreyndarvilla rétt eins og við giskum á kyn við fæðingu barns eins og stendur á veggspjaldinu. Hvað gefur leikskólakennurum leyfi til að innræta börnum slíkar staðreyndarvillur. Foreldrar verða að vakna af þessum Þyrnirósarsvefni gagnvart svona málflutningi, eða innrætingu eins og margir myndu kalla það, inni á stofnunum. Svo ég tali nú ekki um yfirvöld sem virðast meðvirk með translestinni.

Andreas Rasch-Christensen prófessor (sjá neðar) segir:  ,,Yngstu börnin eru mjög móttækileg fyrir því sem borið er á borð fyrir þau. Þau verða fyrir miklum áhrifum þar. Að spyrja gagnvirkra spurninga kemur fyrst síðar.“ Velti fyrir mér hvort að þá verði ekki búið að heilaþvo blessuð börnin t.d. hér á landi með staðreyndarvillum um líffræðina á veggspjaldi, að kynin séu fleiri en tvö. Þá kemur að hlutverki grunnskólakennara að vefja ofan af vitleysunni.

Andreas Rasch-Christensen, der er forskningschef ved Forskningscenter for Pædasgogik og Dannelse ved professionshøjskoeln VIA University College, udtaler at

”De ynglste vil være meget modtagelige over for den opfattelse, de får serveret. Der vil man i høj grad præge dem. Det her med at stille modspørgsmål, det kommer først senere.”


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband