Á samfélagið að borga matinn?

Í grein sem birtist á mbl.is ,,Allt í einu er komin framvarðarsveit" segir á einum stað „Há­deg­is­mat­ur­inn ætti að vera frír því hann er stund­um eini mat­ur­inn sem börn eru að fá, svo þetta jafn­rétti og aðstöðumun­ur, mér finnst ekki nógu mikið gert í því.“

Ég er á móti því að samfélagið greiði hádegismat ofan í börn forstjóra, kennara, hjúkrunarfræðinga, lækna, deildarstjóra, banakstarfsmanna, prófessora, viðskiptafræðinga o.fl. sem þéna vel og geta borgað matinn ofan í börn sín. Hins vegar er sjálfsagt að skólinn sigti þau börn út sem þurfa á aðstoð að halda og borga matinn ofan í þau.

Samfélagið á ekki að taka fæðisskyldu af öllum foreldrum. Samfélagið á ekki að greiða fyrir það sem fólk getur sjálft greitt fyrir. Samfélagið á hins vegar að aðstoða þá sem hafa ekki tekjur til að sinna þessari þörf barna sinna- að borða.

Hér má lesa greinina.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband