Hljómar vel...náðu saman!

Margir kjarasamningar eru í grunninn úreltir sökum aldurs og breytinga í samfélaginu, ekki bara okkar heldur alþjóðasamfélaginu. Fram kemur að: ,,Gerðar voru veru­leg­ar breyt­ing­ar á samn­ingn­um sem tryggja aukið vinnu­fram­lag flug­manna og gefa fé­lag­inu auk­inn sveigj­an­leika til þró­un­ar á leiðakerfi Icelanda­ir." 

Marga kjarasamninga þarf að endurskoða en samningspólitíkin hér á landi gefur viðsemjendum sjaldan svigrún til breytinga. Ávallt er samið þegar kjarasamningur er runninn út. Hugsum til hjúkrunarfræðinga, framhaldsskólakennara, lögreglunnar og grunnskólakennara. Allt stéttir með lausan eða mjög skamman samning. Kjarasamningur grunnskólakennara losnaði 1. júlí 2019 og viðræður í gangi. Ekki útséð hvort samningur liggur fyrir þegar skólastarfi lýkur um miðjan júní.


mbl.is Atkvæðagreiðslu lýkur fyrir hluthafafund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband