Skil ekki hvað er svona erfitt

Skil ekki hvað er svona erfitt og flókið við þetta. Mér þykir eðlilegt að fækka vinnustundum  á viku um 5. Það hefði í för með sér 7 tíma vaktir eða átta tíma vaktir og starfsmaður safnar í banka og þegar átta tímar eru komnir er frídagur. Eflaust myndu margir ráða sig í hærra starfshlutfall þegar vinnuvika styttist og mætir að hluta mönnunarþörfinni við styttingu vinnuvikunnar.

 


mbl.is Öll spjót standa á vaktavinnuhópi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ef margir ráða sig í hærra starfshlutfall þá er það sönnun þess að rökin fyrir styttingu vinnuvikunnar voru bull. Vaktavinnufólkið er erfitt, sérstaklega það sem er á skertu starfshlutfalli. Það er stundum snúið fyrir það að láta vaktirnar passa við hina vinnuna. Heilir dagar gefa þeim tækifæri til að vinna meira í hinni vinnuni en styttri vaktir. Og hin vinnan afsannar þörfina á styttingu vinnuvikunnar. Þannig að krafan um styttri vinnudag vegna álags og færri vinnudaga en jafn langan vinnudag fer illa saman.

Vagn (IP-tala skráð) 26.1.2020 kl. 16:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband