Hjúkrunarfræðingarnir skila sér kannski inn í fagið

Skelfilegt að upplifa svona nokkuð. Fréttaflutningur af hjúkrunarfræðingum sem flúðu í stétt flugfreyja vegna launakjara voru áberandi hér fyrir ekki svo löngu síðan. Vonandi fá þeir hjúkrunarfræðingar störf innan hjúkrunar sem hafa misst vinnuna hjá WOW. Alltaf kostur að geta gengið í vinnu þegar annað bregst.


mbl.is „Fólk er niðurbrotið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Og hvert á að sækja pening til að borga þeim laun? Tekjur ríkisins koma til með að lækka og útgjöld að hækka. Samningar ríkisstarfsmanna eru að losna og þeir fara ekki að fara fram á minna en almenni markaðurinn gerir. Loðnan brást. Og verkalýðsfélögin vilja verulegar skattalækkanir, bótahækkanir og fjármagn frá ríkinu í húsnæðismálin.

Vagn (IP-tala skráð) 29.3.2019 kl. 15:29

2 identicon

Nú er það svo Vagn að spítalinn er rekinn á svokölluðum aukavöktum þegar ekki tekst að manna hverja vakt. Reikna með að hluti, stór hluti, fjármagnsins komi frá þeim. Það er ýmislegt í gangi í samfélaginu en allir vilja þjónustu þegar þeir eru veikir, helst samdægurs. Las á Vísi að nú þegar hafa hjúkrunarfræðingar leitað eftir vinnu hjá Lsp-háksólasjúkrahúsi.

Það er nefnilega svo með opinbera geirann að starfsfólk sækir þangað í öryggið en í einkageirann í ævintýrið. Vona bara að hjúkrunarfræðingar noti sína menntun, sinni hjúkrun. 

Helga D Sverrisdóttir (IP-tala skráð) 29.3.2019 kl. 15:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband