Ætti að kynna sér málin betur

Hreint ótrúlegt að lesa svar fölskylduráðgjafans ,,Eins með börn­in, ef þú held­ur áfram að vera kær­leiks­rík­ur gagn­vart kon­unni þinni og börn­um, þá þarftu ekk­ert að ótt­ast tengt börn­un­um. Það er rétt­ur þeirra að um­gang­ast báða for­eldra sína og kon­an þín hef­ur ekk­ert úr­slita­vald yfir þeim rétti." Margt bendir til að umræddur ráðgjafi hafi ekki fylgst með umræðunni í samfélaginu. Beittasta vopn konunnar er að nota börnin. Konur komast upp með það og yfirvöld styðja ofbeldið, eins og ég vel að kalla þann gjörning að hóta föður að hann fái ekki að hitta barn eða börn sín. 

Alltof algengt er að feður fara út af heimilinu án barna. Alltof margir telja það rétt móður að halda börnum eftir skilnað. Svo er ekki. Ein mestu mistök sem margir karlmenn gera og þ.a.l. fá konur beitt vopn í hendurnar, sem margar nota óspart á ósmekklegan hátt.


mbl.is Ég elska ekki konuna mína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband