Enn gera transsamtök grín að konum

og ég spyr hvenær ætlar kvenfólk að mótmæla þessu sem ég kalla þvætting. Konur vaknið- látum ekki niðurlægja okkur á þennan hátt.

Á myndinni hér neðar er því haldið fram að karl, sem skilgreinir sig sem konu, geti verið lesbía og notað typpið til kynmaka. Halló...er ekki allt í lagi með fólk. Konur geta líffræðilega ekki haft typpi, það er ekki þeirra æxlunarfæri. Karl sem skilgreinir sig sem konu fer eftir ákveðinni hugmyndafræði- sem fer fram í huganum ekki líkamanum. Þetta er eins með fólk sem þjáist af anorexíu, líti það í spegill sér það miklu feitari manneskju en hún í raun er. Hugurinn ræður för!

Nei þetta er ekki samkynhneigð kona hér á ferð sem notar typpi í kynmökum við konu! Af og frá, líffræðilega ekki hægt. Lesbía er orð yfir konu, með leg, sem elskar aðra konu með leg. Getur ekki verið auðveldara. Svo kallar margt af þessu liði mig transfóbíska. Nei það er ég ekki, horfi á staðreyndir líffræðinnar. Kynin eru tvö, karl- og kvenmaður. Hugmyndafræðin er hins vegar alls konar, rétt eins og hugmyndafræðin að Guð og Jesú hafi verið til. Menn mega stunda sína hugmyndafræði fyrir mér, en ruglið því ekki við staðreyndir og líffræðina.

 

May be a Twitter screenshot of Texti þar sem stendur  


Bloggfærslur 2. janúar 2023

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband