Endemis bull í þessum kellum

Ég er eiginlega hneyksluð á þessum konum. Að þær skuli kalla sig kvenréttindakonur. Auðvitað á með öllum tiltækum ráðum að fækka tímum hvers barns á leikskóla. Að setja það í samhengi við kvennabaráttu er þeim til skammar. Börn sem dvelja rúma 9 tíma á leikskóla eru með lengri vinnudag en foreldrarnir og því ber að breyta.

Vona svo sannarlega að borgin hlusti ekki á samtök sem þessi sem hafna styttri vinnudegi barna á viðkvæmasta aldri.

Frami, kvenréttindi og pólitík á ekki að koma við sögu þegar velferð barna er rædd. Vinna á því með öllum tiltækum ráðum að fækka vinnustundum barna og óskastaða hvers barns er að vera meira með foreldrum sínum. Hverju barni dugar 5-6 tímar á leikskóla, sem hámark. 

Skömm að þessum mótmælum Kvenréttindafélags Íslands.


mbl.is „Lúalegt“ að ala á samviskubiti foreldra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 21. janúar 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband