Alger hugsunarvilla

,,Þar á meðal hækk­un barna­bóta til þeirra sem lægst hefðu laun­in og annað væri í far­vatn­inu." Mér er óskiljanlegt af hverju þingmenn tala alltaf um að þeir sem lægstu launin hafa séu með börn. Hér getur verið um að ræða feður sem borga meðlög, lifa í fátækt. Hér getur verið um einstaklinga að ræða á leigumarkaðnum og á ekki rétt á neinum barnabótum, vantar börn. Það eru margir hópar í samfélaginu sem lifa á lægstu laununum án þess að eiga börn. Þess vegna hjálpar það ekki Bryndís að laga bara aðstæður barnafólks og skilja hina eftir. Þetta er hugsanavilla sem þarf að rétta af.


mbl.is Hroki að hóta þingmönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríða feitum hesti...í boð ríkisstjórnarinnar.

Þá liggur það fyrir. Ríkisstjórnin tilbúin að rétta verkalýðnum smáraura á fati. Þeir ríða feitum hesti eftir útspili Katrínar, Bjarna og hinna sem sitja á þingi. Verkalýðsforystan svarar þessu væntanlega fljótlega. Kannski við búum okkur undir skæruverkföll ýmist í einum geira eða fleirum. Mér þykir skömm af þessum tillögum. Ríkisstjórnin hefði getað gert betur.


mbl.is Boða nýtt 32,94% skattþrep
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 19. febrúar 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband