Einhver fótur fyrir þessu

Verður maður ekki að gera ráð fyrir að einhver fótur sé fyrir ásökunum úr því þeir verða áfram í varðhaldi. Varla er það upp á punt. Fangarnir sem hér um ræðir ættu að varpa ljósi á málið þegar að því kemur. Hafa þó nokkurn tíma til að gera upp hug sinn. 

Hér á landi heyrir maður ekkert af rannsókn á Samherjamálinu. Jú, innanhúsrannsókn hjá Samherja...sem leiðir ábyggilega allt gott í ljós. Það gera innanhúsrannsóknir yfirleitt enda pantaðar af þeim sem málið varðar. Trúverðugar, um það má efast.

Kannski kemur hvellur á nýju ári í tengslum við rannsóknina, menn vinna sennilega á bak við tjöldin og vilja ekki opinbera nokkuð. 


mbl.is Sitja áfram í haldi fram í febrúar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 27. desember 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband