Sami hópur gagnrýnir hann fyrir að berjast gegn ofbeldi...

Merkilegt að öfgahópurinn Líf án ofbeldis hefur sett sig upp á móti tálmunarfrumvarpi Brynjars sem tekur á ofbeldi gagnavart börnum. Skiptir þá engu hvort faðir eða móðir beitir því. Tvískinnungsháttur hjá hópnum, vilja kynjastríð um áríðandi málefni. Auðvitað á að taka á öllu ofbeldi gagnvart börnum, hentistefna á ekki að ráða neinu þar um.

Miklu nær að snúa bökum saman og vinna gegn ofbeldi...áhugaverð skýrsla, https://redbarnet.dk/media/3699/kvinders-vold-mod-boern-spreadsheet.pdf?fbclid=IwAR26Zet4Gn37RW4WECLrKXNo6XG7ptxLGwffzMU5A3sPE863I5iYWoNExS0

 


mbl.is Gagnrýnir bréfaskrif Lífs án ofbeldis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Líf án ofbeldins- öfgahópur

Brynjar Níelsson þingmaður hefur með réttu varað þingmenn við að taka mark á bréfi frá öfgahópnum Líf án ofbeldis. Mæður sem hafa átt og eiga í forsjárdeilum taka sig nú saman og segjast vinna gegn ofbeldi, bara ofbeldi feðra í forsjárdeildum. Mæður mega hins vegar beita ofbeldi, því annar hefði öfgahópurinn ekki kyngreint annað foreldrið. 

Mæður og feður beita börn sín ofbeldi og það þarf að stoppa með öllum tiltækum ráðum. Öfgahópurinn viðurkennir ekki að mæður geti beitt börn sín ofbeldi þó rannsóknir sýni annað. Í jafn viðkvæmum málum og þessum mega öfgahópar ekki vaða upp.

Foreldraútilokun er ofbeldi. Öfgahópurinn Líf án ofbeldis segir það tómt bull, það sé ekki til þó svo að til séu margar rannsóknir sem sýna hvers konar ofbeldi það er. Foreldraútilokun beita bæði mæður og feður.

Vona að þingmenn falli ekki í gryfju öfgahópsins og haldi sínu striki varðandi tálmunarfrumvarp þingmanna. Refsa á þeim sem koma í veg fyrir að börn umgangist báða foreldra sína.


Bloggfærslur 15. október 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband