17.12.2018 | 20:32
Kráarþingmennirnir eltir...u, he da, da.
Mér þykja samsæriskenningarnar mjög fyndnar. Hver vissi að kráarþingmennirnir ætluðu á kránna á vinnutíma. Hvern létu þeir vita. Eru menn virkilega svo langt leiddir í siðblindu að þeir finna upp á svona draugasögu. Hefði ég verið í sporum Báru hefði ég gert nákvæmlega það sama. Tímabært að við tökum á siðblindum alþingismönnum. Alltaf er einhvern tímann fyrst. Gott að byrja nú. Ekki segja, næst. Kráarþingmenn njóta engrar virðingar og eru ekki marktækir á nokkurn hátt í mínum augum. Synd að sitja uppi með svona fólk á þingi. Veit líka að margir mættu fjúka af hinu háa Alþingi en allt hefst þetta á fyrsta skrefinu.
Mikilvægt að tryggja tilvist myndefnis | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)