28.4.2018 | 20:30
Hann er því miður ekki sá eini
,,Ég er einnig faðir drengs sem hefur verið málaður upp sem skrímsli í Stundinni, en þar er því nánast slegið föstu að hann sé hættulegur kynferðisbrotamaður, þrátt fyrir að rannsókn lögreglu og Barnahúss hafi komist að þeirri niðurstöðu að ekkert renndi stoðum undir ávirðingar barnsmóður hans og fjölskyldu hennar gagnvart honum sem bornar voru upp í umgengni- og forræðisdeilu."
Skelfilegt að lesa og skelfilegt að lögreglu og þar til bærum yfirvöldum sé ekki trúað. Brögð af þessum toga hafa verið notuð gegn feðrum til að tálma umgengni og því oftar en ekki tekst það. Mæður vita hvar á að ljúga upp á föður sem ekki bara missir tengsl við börn sín heldur og mannorð oft á tíðum. Því miður er þeim ekki hengt. Í Danaveldi hafa menn tekið fyrir svona hegðun og tilkynningum um kynferðisbrot hefur fækkað í þessum málflokki svo um munar. Þar í langi eiga mæður að taka ábyrgð á gjörðum sínum.
Er ekki tímabært að stoppa svona hegðun af hálfu mæðra, þó það væri ekki nema barnanna vegna sem mega þola mikið vegna oploginna saka á hendur pabba þeirra.
Ég er ekki kunningi Braga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.4.2018 | 11:26
Gullgrafaraæðið í rénun
Mörg fyrirtæki tengd ferðaþjónustu spruttu upp þegar ferðamannafjöldinn var hvað mestur, allir vildu græða og vera með. Verð á ferðum, þjónustu, mat og öðru var sprengt upp svo um munaði. Hefur ekkert með stöðu gengis að gera nema að nú fá þessir ferðaþjónustuaðilar minna í vasann, þeir gætu lækkað verð til að koma á móts við ferðamennina. Gott að sigta aðeins úr þessum geira.
Á von á grisjun í ferðaþjónustunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.4.2018 | 11:21
Svart hagkerfi í þessari starfssemi
Hvað skyldi mikið af fjármagni ekki skila sér upp á borð. Margir bjóða gistingu án þess að hafa til þess tilskilin leyfi og hvað þá að þeir borgi skatta af upphæðinni. Skattayfirvöld ættu að leggja mannskap og peninga í að ná í skottið á þeim sem stunda þessi viðskipti án leyfa.
14,7 milljarða tekjur af Airbnb | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.4.2018 | 11:16
Og hvaðan á starfsfólkið að koma
Minnsta mál að byggja en hvaðan á starfsfólkið að koma. Mikil vöntun á hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum sem ættu gjarnan að vinna á þessum heimilum.
550 fleiri hjúkrunarrými á næstu árum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.4.2018 | 08:38
Framámenn í Kennarasambandi Íslands láku upplýsingum til fjölmiðla
Á nýafstöðnu þingi Kennarasambands Íslands reyndu forystusauðir Kennarasambandsins að kúga lýðræðið innan samtakanna. Þeim tókst það ekki. Þökk sé þingfulltrúum.
En hvernig málið bar að er í alla staði óeðlilegt. Eins og gengur og gerist þurfa þingfulltrúar athyglishlé því misjafnt er hve frummælendur ná til fólks. Allt í einu ýtir sessunautur við mér og spyr veist þú eitthvað um þetta? og sýnir mér frétt á mbl.is, sem birtist kl. 10:56 þann 12. apríl, um að taka eigi áskorun til afgreiðslu á þinginu, sem ég sat, eftir hádegi. Ég gapti. Þetta er málið sem verðandi formaður skrifaði um á Stundinni, sem ég hélt að væri hugarórar í manninum, hugsaði ég. Af hverju, jú því lýðræðið hafði talað.
Það sem situr eftir hjá mér, hvernig geta fjölmiðlar fengið upplýsingar um dagskrárlið sem verður eftir hádegi og birt er fyrir hádegi opinberlega. Og ekki nóg með það, Félag framhaldsskóla tísti kl.13:56 og tístið hljómar svo Áskorun kemur fram á þinginu um að tilvonandi formaður KÍ endurnýi umboð sitt #metoo #thingki2018 Gera má ráð fyrir að formaður Félags framhaldsskólakennara tísti fyrir hönd félagsmanna sinna. Skammarlegt.
Það er ljóst að framámenn í Kennarasambandi Íslands komu upplýsingum til fjölmiðla áður en þingfulltrúar fengu upplýsingar um málið. Áður en málið kom á dagskrá og án þess að umræða færi fram. Hef bara aldrei kynnst öðru eins siðleysi af hálfu forystumanna stéttarfélaga. Þetta er lítilsvirðing við kjörna fulltrúa og félagsmenn.
Vegna þessa trúnaðarbrests af hálfu forystusauðanna voru fjölmiðlar eins og gráir kettir í kringum þingið til að fá niðurstöðu úr málinu. Þeim var brugðið að þingfulltrúar mætti þessu siðleysi og svöruðu konunum fullum hálsi. Lýðræðið hafði talað og talaði á þinginu.
Mér er óskiljanlegt hvernig formenn, varaformenn, stjórnarmenn og aðrir sem sinna trúnaðarstörfum fyrir samtökin geti komið svona fram, trúnaðarbrestur. Við í félagi grunnskólakennara þurfum ekki að hafa áhyggjur af áframhaldandi setu forystunnar því skipt verður á aðalfundi um miðjan maí.
Því miður sýndu fjölmiðlar forystusauði þeirra sem báru upp áskorunina áhuga og það sem hún sagði endurspeglar ekki á nokkurn hátt skoðun allra félaga innan Kennarasambands Íslands. Kennarar, hvaða nafni sem þeir nefnast, kusu lýðræðislega um nýjan formann og ekkert gat og getur breytt því.
Mér þykir ámælisvert að hópur kvenna í æðstu stöðum innan KÍ gangi fram með þessum hætti og leki upplýsingum og í reynd búnar að ákveða og tilkynna um atkvæðagreiðslu. Þetta er trúnaðarbrot að mínu mati, en það er verk lögfræðings KÍ að skera úr um það, því ég minni á að löglega kjörnir fulltrúar vissu ekkert um málið, kom eins og skrattinn úr sauðarleggnum.
Með þeim tveimur greinum sem ég hef skrifað um málið hef ég komið atburðarásinni og mínum skoðunum á framfæri. Ég taldi það nauðsynlegt svo að kennarar fái innsýn í þá valdníðslu sem átti sér stað á 7. þingi Kennarasambands Íslands.
Mér var gróflega misboðið!
Taka afstöðu um áskorun á morgun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.4.2018 | 11:49
Forystusauðir innan Kennarasambands Íslands ætluðu sér að kúga lýðræðið
Undirrituð sat þing KÍ á dögunum sem fulltrúi grunnskólakennara. Margt áhugavert kom fram á þinginu en þetta er fyrsta þingið sem ég sit fyrir stéttina. Dagskrá þingsins var send út á réttum tíma. Þannig vissu allir hvað taka áttu fyrir og gátu undirbúið sig eins og vani er þegar verkalýðurinn heldur þing.
Ég varð vitni af ótrúlegri atburðarás sem átti að enda með lýðræðissviptingu kennara innan KÍ.
Einn dagskrárliður á fimmtudeginum var kynning á ,,Einnig ég hreyfingunni sem gengur undir myllumerkinu metoo. Kennarar hlustuðu og veittu framsögumönnum athygli. Þegar þeim er þakkað óskar varaformaður FF að hópur kvenna í samtökunum stígi á stokk til þakka þeim góða vinnu. Á sviðið stíga varaformenn og stjórnarmenn félaga innan KÍ.
Allt í einu og án þess að biðja um orðið, eins og venja er á svona þingum samkvæmt þingskapalögum, tekur stjórnarmaður Skólastjórafélags Íslands orðið og hefur lesningu á áskorun. Gjörsamleg gegn þingsköpum. Þetta var stoppað og krafist svara um hvort þetta væri löglegt m.t.t. þingskapalaga. Hlé var gert á fundinum. Síðar voru þingfulltrúar kallaðir saman og þeim tjáð að ljúka mætti lestri áskorunarinnar. Það var gert. Í lokin var farið fram á atkvæðagreiðslu án umræðna vegna tímaskorts á þinginu. Þessu mótmæltu fundarmenn og til að segja langa sögu stutta var ákveðið að færa málið um áskorunina undir liðinn önnur mál þar sem hann upphaflega átti heima. Önnur ákvörðun var ekki tekin á þessum tímapunkti um áskorunina.
Á föstudeginum óskar formaður Skólastjórafélags Íslands eftir dagskrábreytingu um að önnur mál færist fram fyrir liðinn formannsskipti í KÍ. Þingið samþykkti það enda tillagan löglega borin upp og atkvæðagreiðsla fór fram um hana.
Áskorun, sem átti að vera samþykkt frá þinginu, til verðandi formanns um að blása aftur til kosninga um formann KÍ var lesin upp. Eins og fyrr var óskað eftir leynilegra atkvæðagreiðslu án umræðna. Samkvæmt þingskapalögum er það bannað, sé efnisleg tillaga borin upp ber að opna mælendaskrá sem var og gert. Sem betur fer var félagsvant fólk á milli þingfulltrúa sem gáfu ekki eftir að menn hundsuðu þingsköp eða færu á svig við þau á nokkurn hátt.
Eftir nokkrar umræður kom frávísunartillaga sem var samþykkt. Frávísunartillögu þarf að bera undir atkvæði um leið og hún er lögð fram. Menn höfðu tvo kosti, segja já- vísa tillögunni frá, eða nei- og halda umræðunni áfram. Heyrst hefur að mjótt hafi verið á munum, en menn verða að athuga, það var ekki kosið um tillöguna heldur frávísunina. Töluverður fjöldi þingmanna vildi að áfram yrði fjallað um áskorunina sem hugsanlega tekin til atkvæðagreiðslu, kæmi ekki frávísunartillaga. Hér er um tvo óskilda hluti að ræða.
Mér þykir það alvarlegt mál að formenn, varaformenn og stjórnarmenn í stéttarfélögum leggist á eitt að gera aðför að lýðræðinu. Áskorun um að brjóta lög Kennarasambands Íslands var lögð fram af fólki sem stendur í fremstu víglínu, þeirra sem á að gæta réttar okkar, kjarasamnings og að lög félaganna séu virt. Að þeir leggi nafn sitt og gjörðir við slíkt er forkastanlegt að mínu mati. Krafan á þinginu var að verðandi formaður færi á svig við lög KÍ og boðaði til kosninga að nýju, sem lög KÍ heimila ekki. Rúsínan í pylsuendanum var að þeir fulltrúar sem stóðu þarna uppi ásamt formanni FF myndu ekki gefa kost á sér, rétt eins og af kosningu yrði.
Þingið samþykkti aldrei að atkvæðagreiðsla færi fram um áskorunina, eins og fram hefur komið hjá formanni FF, enda hefði það verið gerræðislegt að taka lýðræðið úr höndum hins almenna félaga sem kaus sér formann KÍ.
Að mínu mati gerir framkoma þessara einstaklinga þá vængbrotna eða nær vanhæfa í störfum fyrir félagsmenn sína, en sitt sýnist hverjum um það. Þingsköp, lög KÍ og lýðræði félagsins var að engu höfð af forystusauðunum. Þetta upphlaup sem varð á þingi KÍ hefur vonandi kennt félagsmönnum að lýðræðið er mikilvægt, við skulum minnast þess þegar kemur að kosningum.
Ég er auk þess verulega hugsi yfir að formenn félaga innan KÍ skyldu ekki stoppa valdníðsluna sem felst í þessum gjörningi. Af þinginu fór ég reynslunni ríkari, óhætt að segja það.
Höfundur er grunnskólakennari og þingfulltrúi FG.
Formaður KÍ skammaði fjölmiðla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.4.2018 | 19:34
Forystusauðum KÍ til skammar
Fer ekki í grafgötur með að ég átti ekki til eitt einasta orð þegar stjórnarmaður Skólastjórafélags Íslands hóf lestur ályktunarinnar. Það leið ekki langur tími þar til lesturinn var stoppaður, sem betur fer. Valdníðsla þessara kvenna virðist ekki eiga sér nein takmörk. Lýðræðið átti að troða niður í svaðið og láta Ragnar Þór ákveða hvort yrðu aðrar kosningar. Hann hefur enga lagaheimild til þess.
Þingfulltrúar lásu það á mbl.is að áskorun yrði tekin fyrir á þingi síðar um daginn. Til að lauma þessari áskorun inn settu stjórnarmenn aðildarfélagana kynningu á ,,Einnig ég" hreyfingunni. Í kjölfarið, án þess að nokkur almennur þingfulltrúi vissi, var allt annað málefni komið á dagskrá.
Hafi þær skömm fyrir þessar konur, þær gerðum engum greiða, þær tröðkuðu á lýðræðinu sem á að ríkja í hverju félagi og að mínu mati urðu sjálfum sér til skammar.
Tillögu um áskorun vísað frá | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 16.4.2018 kl. 11:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.4.2018 | 09:34
Endemis bull
Sú sem þetta ritar situr þingið. það hvílir enginn skuggi fyrir því né starfi þess. En hvort þessi skuggi hvíli í formanni FF get ég ekki sagt neitt um eða hvort hún varpi þessum skugga sínum á þá sem eru næstir hennar. Mér þykja þetta villandi fréttir og segir stöðuna ekki eins og hún í raun er. Eins gott að fjölmiðlar tali við fleiri en þá sem gaspra hæst.
Fréttin á mbl. takist með varúð!
Skuggi hvílir yfir þingi kennara | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.4.2018 | 19:30
Af hverju eru þið svona lengi að koma ykkur að verki
Hve oft hafa þingmenn ekki rætt smálán og hvers konar okurstarfssemi það er, hve nauðsynlegt sé að koma í veg fyrir þau o.f.frv. SAMT GERIST EKKERT Á ÞINGINU í tengslum við málaflokkinn.
Smálán ekkert annað en óværa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.4.2018 | 14:55
Sameina stéttarfélögin
Hef sagt það áður og segi enn, sameina á Félag ísl. hjúkrunarfræðinga og Ljósmæðrafélagið. Þar sem hjúkrunarmenntunin er undanfari ljósmóðurnámsins er galið að hafa tvö stéttarfélög sem semja fyrir sitt hvora stéttina. Spurning hvenær það gerist. Hjúkrunarfélagið ætti að semja fyrir ljósmæður sem sérnám ofan á hjúkrunarnámið. Því fyrr sem félagar sameinast því betra.
Styðja kjarabaráttu ljósmæðra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 6.4.2018 kl. 21:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)