Eldmóður barns

Sú staðreynd að barn þurfi að berjast fyrir breyttu lögheimili er þyngra en tárum taki. Ekki laust við að orðspekin ,,Eldmóður er driffjöður lífsins. Án hans getur þú ekkert gert en með honum eru þér allir vegir færir“, hafi komið upp í huga minn þegar ég heyrði um baráttu barnsins. Barnið vill búa hjá föður en móðir neitar að flytja lögheimilið vegna fjármagnsins sem hún fær með barninu. Kerfið hefur hingað til setið hjá. Hvers eiga börn að gjalda?

Barnavernd hefur tekið málið undir sinn verndarvæng, þó fyrr hefði verið. Hvernig málinu lyktar verður fróðlegt að fylgjast með. Margir spá að ekkert gerist því starfsmenn barnaverndarmála hér á landi séu svo hliðholl mæðrum að barn getur ekki treyst á að starfsmennirnir vinni faglega. Slæmt til afspurnar.


Bloggfærslur 6. janúar 2021

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband